Thursday, February 21, 2013

Hæ hó!

Eftir laaangt hlé og margar áskoranir hef ég ákveðið að endurlífga bloggið. Jey! :) 
Á ýmislegt uppsafnað og óbloggað efni, sem að ég kem til með að henda inn á næstunni. Fyrst út er slefsmekkur og snudduband sem að ég bjó til fyrir yngsta peðið fyrir um ári síðan.



Smekkurinn er endurvinnsla. Hann er gerður úr samfellu sem var búin að vera í uppáhaldi og var orðin vel notuð eftir 3 börn. Svo vel notuð að það kom gat á hana í kringum smellurnar, en efnið var að öðru leiti ennþá heilt og fallegt. Ég elska þegar að það er hægt að endurnýta uppáhalds hlutina svona :) Smekkurinn er enn í stöðugri notkun og sinnir hlutverki sínu vel. Og snuddubandið var líka frábært, og mikið notað til skiptis við hitt sem að ég gerði, þangað til að unginn hætti allt í einu að vilja snuð rúmlega 8 mánaða gamall.

1 comment:

  1. Flott hjá tér Svava mín, tad er svo gaman og reglulega skemmtilegt ad vera í "endurvinslu"gerdum og tad virkar svo vel.

    ReplyDelete