Thursday, August 19, 2010

Afmælisgjöf..

Mamma mín átti afmæli í lok júlí og ég prjónaði þetta vesti handa henni. Hún var búin að óska sér svona í fyrra, þannig að hún átti þetta inni hjá mér. Vissulega ætlaði ég að vera löngubúin að gera þetta, en það er alltaf einhvað sem kemur uppá og svo gleymast hlutirnir. En nú varð það allavega klárt.

Er hún ekki fín hún mamma mín?

Ég prjónaði þetta á meðan við keyrðum hringinn í kringum landið í sumar, þannig að það má segja það að það hafi farið víða.

Vestið er úr léttlopa og úr sauðalitum samkvæmt hennar ósk. Mynstrið er fengið hjá Ístex og heitir Vormorgun eftir Védísi Jónsdóttur. Ég er mjög sátt við útkomuna og ekki skemmir það að það bæði passar og fer mömmu minni svona ljómandi vel. :o)

1 comment:

  1. Jú sko ekkert smá flott sú "gamla" í fallegu vestinu sem tú prjónadir handa mér <3 Knús <3

    ReplyDelete