Sunday, September 5, 2010

Eftiráhyggja...

Ég verð nú að viðurkenna það að gallinn sem að ég prjónaði á Unnar er heldur vel stór á hann. Hann er nú soddan písl miðað við aldur og notar ekki nema stærð 80, en það er miðað við einsárs. Hann verður 2 ára nú í lok mánaðarins.

Benedikt hefur verið voða hrifinn af gallanum og bað um að fá að máta hann. Og viti menn, hann smellpassar á hann! Þannig að líklega er þá gallinn nær 98 en 92, og spurning um að leyfa honum að nota hann í vetur. Ég prjóna þá bara annann á Unnar Frey..

1 comment:

  1. vá sætur
    og gallin er algjört æði
    þú ert svo dugleg móðir og hugsar svo vel um sætu drengina þína

    ReplyDelete