Sunday, November 21, 2010

Handa litlu fiðrildi..

Frænka mín sem pantaði þennan hjá mér um daginn, á von á annarri ömmustelpu á næstu dögum. Hún er nú aldeilis lukkuleg sú amman og að sjálfsögðu fær þetta kríli líka bílstólspoka :o)




Þessi er einsog sá fyrri, fóðraður með glaðlegu flónelefni að innan og mér finnst það koma mjög skemmtilega út! Ég notaði örlítið þykkara vatt í þetta sinn og er sáttari með útkomuna, þó það muni nú ekki miklu. Ég hef líka fengið að heyra það að fyrri pokinn hafi slegið vel í gegn. Gaman að vita af því :o) Nú er bara næsta mál að bíða eftir fiðrildinu sem kúrir enn í mömmumaga. Vonum bara að hún láti ekki bíða lengi eftir sér..

Ännu en DuleLur sovpåse beställd utav min moster. Hon beställde även den här påsen för en månad sen. Hon ska alltså få ett barnbarn till nu i veckan. Denna sovpåsen är liksom den förra, fodrad med mjukaste flanell, fast denna gången använde jag något tjockare vadd. Det skiljer inte mycket men jag är ändå lite nöjdare med denna. Jag har visserligen fått höra att den andra påsen hade varit en succé. Det är kul att få höra!

No comments:

Post a Comment